Sjálfstæðisfélag Seltirninga býður þér til morgunfundar um skólamál á Seltjarnarnesi

Sjálfstæðisfélag Seltirninga boðar til opins félagsfundar laugardaginn 11. febrúar 2017 klukkan 10:00 í sal félagsins að Austurströnd 3, 3. hæð.

Gestur fundarins: Sigrún Edda Jónsdóttir, formaður skólanefndar.

Dagskrá:

  1. Skólamál á Seltjarnarnesi.
  2. Önnur mál.

Boðið verður upp á kaffi, rúnstykki og vínarbrauð.

Allir velkomnir,
Stjórnin.