Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi verður 26. febrúar 2022.
Á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi þann 16. desember sl. var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum að halda prófkjör. Prófkjörið fer fram laugardaginn 26. febrúar 2022. Framboðsfrestur fyrir þátttöku í framboðinu er til 17. janúar 2022 kl. 20:00. Nánari útfærsla verður skv. reglum Sjálfstæðisflokksins og ákvörðunum kjörnefndar. Þriggja manna kjörnefnd var kosin á fundinum en hana skipa þau Ingimar Sigurðsson, Petrea Jónsdóttir og Kristján Hilmir Baldursson.
Á fundinum voru líflegar umræður um þá ákvörðun að hækka álögur á bæjarbúa.
Magnús Örn Guðmundsson forseti bæjarstjórnar fór yfir stöðu fjármála og sagði hana sterka, skuldahlutfall lágt og bjarta tíma fram undan. Þá ítrekaði Magnús Örn ætlun sína til að taka þátt í prófkjörinu og vilja sinn til að leiða lista flokksins í næstu kosningum. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri fór sömuleiðis yfir sterka fjárhagsstöðu bæjarins og sagði áætlað að tekjur bæjarins hækki um 250 m.kr. með tilkomu Gróttubyggðar sem rísa mun á árunum 2022 og 2023, án þess að til komi mikil útgjöld vegna innviða. Ásgerður hvatti félaga í flokknum til að bjóða sig fram í prófkjöri flokksins í febrúar. Óli Björn Kárason þingsflokksaformaður Sjálfstæðisflokksins og Seltirningur minnti Sjálfstæðismenn á mikilvægi flokksins á Seltjarnarnesi og þá staðreynd að flokkurinn hefur haft forystu um að byggja upp hið eftirsótta samfélag á Seltjarnarnesi.
Gestur fundarins var Halldór Blöndal fyrrverandi ráðherra og formaður eldri Sjálfstæðismanna. Hann var boðinn velkominn á Seltjarnarnes, en hann er nýfluttur í bæinn. Halldór þakkaði hlý orð og hvatti Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi til dáða í komandi kosningum.