Það er fátt sem skiptir samfélag meira máli en að íbúar hafi gott aðgengi að hreyfingu, útivist og virkri þátttöku í daglegu lífi. Á Seltjarnarnesi búum við að sterkum grunni. Hér er rík hefð fyrir öflugu íþrótta- og tómstundastarfi og mikilli þátttöku íbúa á öllum aldri.
Lýðheilsa snýst ekki aðeins um íþróttir í hefðbundnum skilningi. Hún snýst fyrst og fremst um aðgengi. Að börnin okkar geti fundið sinn stað í skipulögðu starfi. Að unglingarnir okkar haldi áfram að mæta á æfingar vegna þess að þau upplifa félagsskap, tilgang og gleði. Að fullorðið fólk geti hreyft sig í nærumhverfinu og að eldri bæjarbúar hafi greiðan aðgang að samveru, útivist og heilsueflandi umhverfi.
Skipulagt íþrótta- og tómstundastarf hefur í áratugi verið í fremstu röð hér á Seltjarnarnesi og þar hefur Grótta verið í lykilhlutverki. Grótta hefur ekki aðeins verið vettvangur til keppni og æfinga barna og ungmenna, heldur líka mikilvægur uppeldis- og félagsvettvangur. Í gegnum Gróttu hafa kynslóðir Seltirninga lært aga, samvinnu, þrautseigju og gleðina sem fylgir því að vera hluti af góðu liði. Það hefur einnig verið ánægjulegt að fylgjast með öðrum íþróttafélögum bæjarins eins og Nesklúbbnum efla sitt skipulagða íþróttastarf s.l. ár sem hefur aukið aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttu og skipulögðu starfi.
Það starf sem hér er unnið á Seltjarnarnesi ætlum við að standa vörð um. Skipulagt starf er ein öflugasta forvörn sem samfélagið hefur yfir að ráða og við eigum að gera allt sem við getum til að halda börnum og ungmennum sem lengst í skipulögðu og fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi.
En lýðheilsa er verkefni sem varir alla ævi. Hún snýst ekki aðeins um uppvaxtarár barna og ungmenna heldur líka um fullorðna, eldri bæjarbúa og félagslega heilsu okkar allra. Þess vegna þurfum við að horfa lengra og spyrja: hvernig getum við gert Seltjarnarnes að enn betri bæ fyrir daglega hreyfingu, útvist og samveru?
Eitt af okkar helstu markmiðum á komandi kjörtímabili er að bæta aðgengi að hreyfingu í nærumhverfinu og efla viðhald þeirra mannvirkja sem nú eru til staðar. Við viljum fjölga litlum og aðgengilegum hreyfistöðvum í bænum, til dæmis með æfingatækjum í Bakkagarði og á öðrum útivistarsvæðum. Slík aðstaða þarf ekki að vera flókin né kostnaðarsöm til að skipta máli. Aðstaðan getur svo nýst íbúum öllum sem vilja taka stutta styrktaræfingu á ferðinni.
Hugsum stórt til framtíðar
Á Seltjarnarnesi eru einstakar söguslóðir og falleg útivistarsvæði m.a. á Valhúsahæð og við læknaminjasafnið í Nesi. Þess vegna teljum við áhugavert að skoða uppbyggingu á fjölnota útivistarsvæði þar sem saga, útivist og lýðheilsa gætu mæst. Þar gætu verið gönguleiðir, æfingatæki, aðstaða til teygju- og styrktaræfinga og jafnvel létt æfingaaðstaða fyrir golfiðkun fyrir byrjendur, fjölskyldur og eldri bæjarbúa.
Slík hugmynd þarf að sjálfsögðu að vinnast að yfirvegun og í sátt við náttúru, skipulag og menningarleg gildi svæðisins sem yrði fyrir valinu. En við eigum að þora að ræða nýjar hugmyndir þegar þær geta aukið lífsgæði bæjarbúa og gert nærumhverfið okkar enn betra.
Til framtíðar eigum við að standa vörð um það sem vel hefur verið gert, styrkja það sem þegar er öflugt og bæta við nýjum lausnum sem auka aðgengi íbúa að hreyfingu og félagslegri virkni. Með markvissu samstarfi, skýrri forgangsröðun og jákvæðri framtíðarsýn getum við gert Seltjarnarnes að enn betri bæ fyrir hreyfingu og heilsu samfélaginu öllu til góðs.
Lárus Gunnarsson höfundur skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi



