Bær sem hlustar á raddir íbúa – Opnunartíminn lengdur

Sumardagurinn fyrsti var mikill fagnaðardagur. Við fögnuðum ekki aðeins komu sumarsins, heldur tilkynnti bæjarstjórn einnig að fallið yrði frá styttingu opnunartíma sundlaugarinnar og að hún yrði aftur opin til kl. 22.

Stytting opnunartímans var upphaflega sett fram sem tilraunaverkefni með það að markmiði að kanna hvort hægt væri að ná fram raunverulegri hagræðingu með því að loka sundlauginni fyrr á kvöldin.

Það er eðlilegt að bærinn skoði reglulega hvernig megi nýta fjármuni sem best án þess að það bitni á íbúum. Í þessu máli kom þó í ljós að sparnaðurinn var lítill á meðan óánægja íbúa var mikil. Við slíkar aðstæður er eðlilegt að endurmeta stöðuna, stíga skref til baka og færa opnunina aftur í fyrra horf.

Þegar opnun sundlaugarinnar er skert hefur það víðtækari áhrif en margir gera sér grein fyrir. Það er ekki aðeins sundlaugin sem lokar fyrr, heldur einnig World Class. Fyrir marga Seltirninga, ekki síst ungt fólk, er síðari hluti kvöldsins sá tími sem gefst til að stunda sund eða líkamsrækt. Stytting opnunartímans kom því niður á stórum hópi íbúa og dró úr aðgengi að mikilvægri þjónustu.

Í prófkjöri Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi fyrr á þessu ári var lenging opnunartíma sundlaugarinnar eitt af mínum helstu áherslumálum. Í samtölum mínum við félagsmenn og bæjarbúa varð mér fljótt ljóst að styttingin mæltist illa fyrir og að margir töldu hana skerða þjónustu án þess að ávinningurinn væri sýnilegur. Sjálfur var ég ekki hlynntur þessari breytingu, þótt ég skildi að hún væri sett fram í tilraunaskyni til að meta mögulegan sparnað.

Við erum lánsöm að boðleiðir skuli vera stuttar og að hlustað sé á raddir íbúa. Í þessu máli var niðurstaðan skýr. Hagræðingin var lítil en þjónustuskerðingin mikil. Bærinn brást við og færði opnunartímann aftur til fyrra horfs.

Magnús Benediktsson höfundur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi