Seltirningur 2025

Kæru lesendur,

stjórn Sjálfstæðisfélags Seltirninga er afar stolt af starfi félagsins
undanfarin ár. Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi
fyrir kjörtímabilið 2022-2026 var m.a. lögð sérstök áhersla á aukið
gagnsæi, samtal og samráð. Félagið hefur lagt ríka áherslu á að
fylgja þessum stefnumiðum eftir, meðal annars með fréttum á
heimasíðu félagsins og með útgáfu Seltirnings, sem hefur reynst
öflugur vettvangur til miðlunar upplýsinga í fjarveru Nesfrétta.

Á undanförnum árum hafa verið haldnir reglulegir opnir fundir
um bæjarmálin, auk svonefndra hverfisfunda þar sem bænum
var skipt upp í fjögur svæði og fjallað um málefni sem snúa að
hverju svæði sérstaklega. Fundirnir hafa mælst vel fyrir og
skapað líflega umræðu og góða þátttöku, ekki síst þegar gestir
utan að komu til að miðla þekkingu eða ræða málefni líðandi
stundar.

Við fögnum áframhaldandi kraftmiklu starfi félagsins, en ný
stjórn tók við á aðalfundi í maí síðastliðnum.

Undir forystu Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn er rík áhersla
lögð á ábyrgan rekstur, öfluga grunnþjónustu, hóflegar álögur á
íbúa og fyrirtæki og skynsamlega fjárfestingu í innviðum
bæjarins.

Í þessu blaði má lesa greinar sem draga fram helsta
árangur undangenginna mánaða, skoða þær áskoranir sem fram
undan eru, og síðast en ekki síst, varpa ljósi á það hvers vegna
Seltjarnarnesbær er fyrirmyndarsamfélag á svo mörgum sviðum.

Hér má lesa blaðið rafrænt en var það einnig borið út á öll heimili á Seltjarnarnesi í sumar.

Kær kveðja, fráfarandi stjórn Sjálfstæðisfélags Seltirninga

Örn Viðar Skúlason, formaður
Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir
Grétar Dór Sigurðsson
Inga Þóra Pálsdóttir
Magnús Benediktsson,
Matthías Johannessen.