Rekstur Seltjarnarnesbæjar er að styrkjast svo um munar. Margir samverkandi þættir valda því, en vaxtalækkunarferli, hagræðing, sterkari skatttekjur auk hærri framlaga úr Jöfnunarsjóði hafa hjálpað bæjarsjóði. Afkoma samstæðu hefur styrkst um 700 milljónir á milli ára. Við þurfum að halda þessu ferli áfram og styrkja afkomu A hluta. Það er helsta verkefnið.

Eftir áföll undanfarinna ára erum við loks farin að sjá til lands. Risaverkefni undanfarinna ára við endurbyggingu skólahúsa sem við Sjálfstæðismenn réðumst í og unnum einstaklega vel í samráði við alla hagaðila er langt komið.

Það sem eftir stendur með skólahúsin er nýtt þak á Mýrarhúsaskóla og klæðning, gluggaskipti og einangrun utanhúss á Valhúsaskóla. Þetta verða verkefni næstu ára í bland við önnur verkefni sem nóg er af.

Stærsta byggingaverkefni okkar er þó bygging nýs leikskólahúss á horni Suðurstrandar og Nesvegar. Það verkefni er fullhannað í samstarfi við starfsfólk Leiksskóla Seltjarnarness og hefur loks verið boðið út. Það er sérstakt fagnaðarefni að loksins sé mögulegt að hefjast handa við framkvæmd stærsta kosningaloforðs okkar Sjálfstæðismanna. Áætlaður byggingatími er um tvö ár.

Við höfum gert ansi margt skemmtilegt og vel heppnað á kjörtímabilinu og nefni ég sérstaklega sölu Safnatraðar 1 sem hýsir Hjúkrunarheimilið Seltjörn og svo skiptum við Grunnskóla Seltjarnarness aftur í sjálfstæðar einingar Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla. Þetta var gert í samráði við hagaðila að undangenginni fýsileikakönnun. Þetta hefur reynst gæfuspor.

Ég fer víða um bæinn á hverjum degi og skynja andann í bæjarfélaginu vel. Heyri ekki annað á fólki en það sé sátt við það sem við Sjálfstæðismenn erum að gera. Það er eftir því tekið að við hlustum. Það er það allra mikilvægasta að hlusta og uppfylla þjónustukröfur íbúa.

Við munum alltaf hlusta

Nú þegar þetta er ritað eru 340 dagar til næstu sveitarstjórnakosninga. Ný forysta flokksins heimsótti okkur á fyrir nokkrum vikum og brýndi okkur til dáða. Við munum sjá meira af þeim á komandi vikum og mánuðum í aðdraganda kosninga. Kosningabaráttan er löngu hafin og er alltaf í gangi. Við erum öll á vaktinni. Flokkurinn okkar hér í bæ sem og á landsvísu þarf á okkur öllum að halda.

Ég vil hvetja íbúa á öllum aldri að gefa kost á sér bæjarpólítíkina sem og að koma að starfi Sjálfstæðisfélaganna en þar er alltaf pláss fyrir hresst fólk .

Þar með hefur þú bein áhrif á bæjarmálin og leggur þitt af mörkum til að gera gott samfélag enn betra. Get með sanni sagt að bæjarmálin eru gefandi og koma okkur öllum sannarlega við.

Því ekki að vera þá bara með? Allar upplýsingar er að fá hjá undirrituðum.

Með ósk um gleði og gæfu kæru Sjálfstæðismenn á Nesinu.


Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.