Kæri Seltirningur, ég er Ásgeir G. Bjarnason og býð mig fram í 3-5 sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor.
Ég er fæddur og uppalinn hér á Nesinu og hef ávallt látið mig varða málefni bæjarins. Ég hef verið í Gróttu frá því að ég man eftir mér, ég hef keppt fyrir Gróttu í nánast öllum greinum nema fimleikum. Einnig dæmdi ég handbolta fyrir Gróttu og var í mörg ár einn af þeim sem sat á ritara og tímavarðar borðinu á heimaleikjum meistaraflokkanna í handbolta. Ég var líka í grillhópi heimaleikjaráðs í fótboltanum í mörg ár. Undanfarin ár hefur orkan farið í golfið og hef ég setið og sit núna í stjórn Golfklúbbsins Ness þar sem ég er jafnframt formaður vallar- og umhverfisnefndar.
Eins og ég hef áður sagt þá er gott að búa á Seltjarnarnesi, ég gef kost á mér á lista Sjálfstæðisflokksins með það að markmiði að vera valinn í sæti 3-5 og á þeim vettvangi vil ég vinna að því að gera bæjarfélagið okkar enn betra þannig að áfram verði best að búa á Seltjarnarnesi.
Helstu áherslumál mín eru:
Fjármálastjórn.
Stærstur hluti útgjalda bæjarins er bundinn í rekstur lögbundinnar þjónustu og grunnþjónustu. Það þarf alltaf að fara mjög vel með það fjármagn sem við höfum úr að spila. Þetta eru peningar íbúanna og mun ég beita mér fyrir því að bæjarfélagið verði rekið á ábyrgan hátt.
Börnin okkar og unga fólkið
Á Nesinu er rík hefð fyrir góðum barnaskóla/grunnskóla. Okkar markmið á að vera að bjóða börnunum okkar upp á það besta þegar kemur að menntun. Fjölbreytta aðstöðu til frístunda með það að markmiði að hver og einn geti þroskast á þann hátt sem honum hentar. Það er hlutverk bæjarins í samstarfi við félagasamtök eins og Gróttu og Golfklúbbsins að skapa umgjörð sem styður þessi markmið.
Aldraðir
Þjóðin er að eldast, við lifum lengur og erum hraustari. En við viljum kannski samt ekki endilega vinna mikið lengur. Möguleikar heldri borgara (eldri borgara) til frístunda, hreyfingar og búsetu eiga að vera í forgangi. Sund, gönguferðir og ekki síst golfiðkun fyrir heldri borgara er eitthvað sem ekki má vera takmarkandi þáttur í okkar bæjarfélagi.
Samgöngur og Skipulagsmál
Borgarlína í þeirri mynd sem hún er sett fram í dag er skipulagsslys. Þrenging stofnæða er öryggismál okkar sem búa á Nesinu. Almennt þá þurfum við að nálgast skipulagsmálin út frá nýtingu lands og landsgæða. Hvort sem horft er til samgangna, útivistarsvæða, íþróttasvæða eða bygginga, þá á að taka tillit til þarfa íbúanna og hámörkun lífsgæða þegar skipulag er ákvarðað.
Ég óska eftir stuðning þínum í 3-5 sæti á lista sjálfstæðisflokksins



