Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 26. maí 2018

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 26. maí 2018 er hafin. Kjósendur skulu framvísa gildum skilríkjum við atkvæðagreiðsluna.

Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun.

Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist kjörstjóra eigi síðar en kl 16:00 þriðjudaginn 22. maí nk. Slík atkvæðagreiðsla má ekki fara fram fyrr en þremur vikum fyrir kjördag.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar má finna á vefnum kosning.is