Auglýst eftir framboðum til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins við næstu bæjar- og sveitarstjórnarkosningar

Prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins við næstu bæjar- og sveitarstjórnarkosningar fer fram laugardaginn 20. janúar 2018.

Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs. Frambjóðandi skal vera flokksbundinn sjálfstæðismaður og búsettur á Seltjarnarnesi.

Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu bæjar- og sveitarstjórnarkosningum. Hver frambjóðandi skal skila inn skriflegum meðmælum með framboði sínu frá 20 flokksbundnum sjálfstæðismönnum búsettum á Seltjarnarnesi, hið minnsta. Tekið skal fram að enginn meðmælandi má mæla með fleirum en 7 frambjóðendum.

Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum, eftir að framboðsfresti lýkur.

Framboðum ber að skila til Guðmundar Jóns Helgasonar, formanns kjörnefndar  (sími: 863 0757), fyrir klukkan 17:00 miðvikudaginn 20. desember 2017.

Einnig er hægt að skila inn framboðum á skrifstofu Sjálfstæðisfélags Seltirninga að Austurströnd 3, 3. hæð frá kl. 15:00-17:00 miðvikudaginn 20. desember 2017.

Eyðublöð: