Umhverfisnefnd Seltjarnarnesbæjar hefur um árabil fylgst náið með útbreiðslu og þéttleika varpfugla á Seltjarnarnesi og hefur kríuvarpið verið í forgangi. Þess er skemmst að minnast er nær engir ungar komust á legg árið 2022 vegna afráns minks. Umhverfisnefnd brást við skjótt við og í aðdraganda varptíma 2023 réðist nefndin, með dyggri aðstoð bæjarstarfsmanna, í aðgerðir til stuðla að varpi auk þess sem gangskör var gerð að því halda minknum í skefjum. Einnig má nefna gerð varpsvæðis -sandfláka- neðan við bílastæði golfvallarins en um er að ræða tilraunaverkefni, m.a. vegna áforma um stækkun bílastæðisins.

Samkvæmt skýrslu Jóhanns Óla Hilmarssonar, fuglafræðings, um varpfugla á Seltjarnarnesi, skiluðu aðgerðir bæjarins góðum árangri og samhliða nægu framboði á síli var afkoma kríunnar góð árið 2023. Varpið bæði þéttist og fleiri ungar komust á legg. Samkvæmt skýrslu Jóhanns Óla frá því í fyrra var heildarstærð kríuvarpsins í fyrrasumar með svipuðu móti þótt einhverjar tilfærslur hafi átt sér stað. Talin voru 1860 hreiður og þar af um helmingur við Snoppu. Í ár hafa bæjaryfirvöld haldið áfram þétt um taumana í baráttunni við minkinn en betur má ef duga skal.
Líkt og undanfarin ár er gróskumikið varp við Snoppu en Grótta virðist einhverra hluta vegna ekki ná sér á strik. Hvað sem því líður virðist varpið heilt á litið vera fremur líflegt í sumar en ljóst er að fylgja verður aðgerðum fast eftir, bæði að því er varðar afræningja en ekki er síður þörf á öðrum ráðstöfunum til verndar fuglalífi.
Grétar Dór Sigurðsson, formaður umhverfisnefndar.



