Ég býð mig fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi sem haldið verður í byrjun febrúar næstkomandi.
Ég ólst upp í Vesturbænum en hef búið á Nesinu í tæp 13 ár ásamt konu minni, Íris Örnu
Jóhannsdóttur, lögfræðingi og forstöðumanni hjá Kviku banka. Sjálfur er ég hagfræðingur að mennt. Við höfum alið hér upp þrjú börn, Eddu Ágústu (f. 2004), Jóhannes Karl (f. 2007) og Kristján Tómas (f. 2010) og hef ég notið þeirra forréttinda að geta tekið virkan þátt, skipulagt og fylgst með því frábæra skóla-, íþrótta-, tónlistar- og félagsstarfi sem í boði er hjá okkar góða sveitarfélagi. Nú langar mig að bjóða fram starfskrafta mína í þágu allra íbúa sveitarfélagsins okkar.
Ég hef víðtæka reynslu af rekstri og fjármálum og trúi því að ef rekstrarleg ábyrgð, heiðarleg markmið og umhyggja fyrir þeim sem ákvarðanir snerta séu samþætt þá fæst niðurstaða sem er í senn sjálfbær og réttlát þegar fram í sækir. Starfsferill minn til 30 ára spannar frá rekstrarlegri hagræðingu fjölþjóðlegra fyrirtækja í New York, endurskipulagningu efnahagsreikninga fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu og að frumkvöðlastarfsemi í tónlistarkennslu.
Áherslur mínar eru fyrst og fremst þær að bærinn okkar haldi áfram að bjóða börnum sínum upp á bestu mögulegu menntun. Á ég þar við menntun í víðum skilningi, því auk grunnskólanna skiptir öflugt tónlistar-, íþrótta- og æskulýðsstarf miklu máli þegar kemur að öryggi, heilbrigðri mótun og uppbyggingu sjálfstæðra einstaklinga.
Þá tel ég að forsenda þess að styrkja þessa jákvæðu þróun til lengri tíma, viðhalda góðri
aðstöðu og þjónustu fyrir eldri borgara og tryggja réttlát tækifæri fyrir yngri kynslóðir, sé skýr framtíðarsýn og ábyrg fjármálastjórn sveitarfélagsins.
Í byrjun árs 2023 greindi ég að eigin frumkvæði rekstur Seltjarnesbæjar og lagði fram tillögur að úrbótum í tekjuöflun sem bæjarstjóri tók vel í. Unnið var úr að minnsta kosti einni þeirra sem leiddi til þess að framlag Jöfnunarsjóðs vegna grunnskóla hækkaði úr engu í 257 m.kr. skv. bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2025. Til að setja þessa upphæð í samhengi þá jafngildir hún 6% af útsvari. Skv. áætlun Stjórnarráðs Íslands er gert ráð fyrir að þessi upphæði muni nema 364 m.kr. fyrir árið 2026.

Er ég þegar með hugmyndir að frekari tekjuöflun og fái ég til þess umboð mun ég leggja mig fram af einurð, aga og umhyggju við að tryggja sjálfbærni í rekstri Seltjarnarnesbæjar. Ég er talnaglöggur og óhræddur við að taka ákvarðanir en umfram allt ber ég langtímahagsmuni samfélags míns hér á Seltjarnarnesi fyrir brjósti. Þess vegna býð ég mig fram í 3. sætið og óska góðfúslega eftir stuðningi þínum.
Björn Jóhannesson



