Kæru Seltirningar,
ég býð mig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi og óska eftir stuðningi ykkar í 2. sæti. Ég tel að reynsla mín og þekking geti nýst vel í sveitastjórnarmálum, þar sem sífellt meiri kröfur eru gerðar um faglega nálgun, skýra forgangsröðun og ábyrga fjármálastjórn.
Ég hef víðtæka reynslu af rekstri, stjórnun og stefnumótun, bæði úr atvinnulífinu og stjórnarstörfum. Í dag er ég í sjálfstæðum rekstri en áður starfaði ég meðal annars í 16 ár sem framkvæmdastjóri einnar stærstu lögmannsstofu landsins sem einnig er með skrifstofur í Bretlandi og Frakklandi. Í því starfi öðlaðist ég dýrmæta reynslu af því að vinna í flóknu rekstrarumhverfi, taka ákvarðanir til lengri tíma og tryggja stöðugleika og árangur. Ég hef fjölbreytta reynslu af stjórnarstörfum félaga og hef jafnframt setið í stjórn Viðskiptaráðs Íslands, sem veitti mér góða innsýn í samspil atvinnulífs og hins opinbera.
Við hjónin höfum búið á Seltjarnarnesi í 10 ár og eigum tvö börn sem hafa notið hér góðrar þjónustu í skóla- og frístundastarfi. Ég hef tekið virkan þátt í skólasamfélaginu, meðal annars sem formaður foreldrafélags Grunnskóla Seltjarnarness og fulltrúi foreldra í skólanefnd.
Seltjarnarnes er einstakt og eftirsótt sveitarfélag fyrir fólk á öllum aldri. Skólar og leikskólar bæjarins njóta góðs orðspors og hér starfar faglegt og metnaðarfullt starfsfólk. Íþrótta- og frístundastarf hefur verið sterkt um árabil og Íþróttafélagið Grótta gegnir þar lykilhlutverki í lífi bæjarbúa. Jafnframt hefur verið lögð rík áhersla á þjónustu og félagslegt starf fyrir eldri borgara. Þessir mikilvægu málaflokkar, ásamt allri grunnþjónustu, eru sú stoð sem sveitarfélagið byggir á og við erum stolt af. Ég vil tryggja að svo verði áfram og að Seltjarnarnes haldi stöðu sinni sem öflugt og leiðandi samfélag. Allt þetta byggir á því að sveitarfélagið standi á traustum grunni og ábyrgum rekstri.
Til að tryggja slíkan grunn þarf að skapa jafnvægi í A-hluta rekstri bæjarins, sem hefur glímt við áskoranir og hallarekstur. Það felur meðal annars í sér skýra yfirsýn yfir eignir sveitarfélagsins, ástand þeirra og framtíðarþarfir, þannig að ákvarðanir um viðhald, endurnýjun og uppbyggingu séu teknar á grundvelli langtímahugsunar og raunhæfra áætlana. Með slíkri nálgun má auka fyrirsjáanleika, dreifa kostnaði yfir tíma og skapa stöðugleika í rekstri.
Jafnframt tel ég mikil tækifæri til hagræðingar, samhliða því að halda áfram úti öflugri og metnaðarfullri grunnþjónustu. Sveitarfélög, líkt og ábyrgur rekstraraðili í atvinnulífinu, þurfa reglulega að endurskoða skipulag, verkefni og verkferla í takt við breyttar þarfir og aðstæður. Innleiðing stafrænnar tækni og stjórnsýslu er hér augljóst tækifæri fyrir Seltjarnarnes, enda má með rafrænum lausnum einfalda ferla, draga úr tvíverknaði og spara bæði tíma og fjármuni – fyrir starfsfólk jafnt sem íbúa.
Á sama tíma þurfum við að horfa til þess hvernig hægt er að styrkja tekjustofna bæjarins án skattahækkana. Þar tel ég tækifæri liggja í ábyrgri uppbyggingarstefnu, markvissri nýtingu lóða og endurskoðun á eignasafni sveitarfélagsins. Í sumum tilfellum kann einnig að vera skynsamlegt að skoða samstarf við einkaaðila, þar sem það á við og þjónar hagsmunum bæjarbúa til lengri tíma.
Ég vil að Seltjarnarnes haldi áfram uppbyggingu sem eflir samfélagið Á sama tíma þurfum við að horfa raunsætt til framtíðar. Seltjarnarnes er lítið sveitarfélag með takmarkað svigrúm til útþenslu og lóðaframboð er af skornum skammti. Það gerir kröfur um að allar ákvarðanir um uppbyggingu séu vel undirbúnar, ábyrgðarfullar og byggðar á skýrri framtíðarsýn. Hér skiptir máli að vanda til verka, nýta þau tækifæri sem eru fyrir hendi með skynsamlegum hætti og eiga virkt samtal við íbúa um hvernig við viljum þróa samfélagið okkar. Næstu stóru verkefni eru uppbygging á þróunarreitum við Suðurströnd og Eiðistorg. Fyrsta svæðið er uppbygging á Eiðistorgi og þar tel ég brýnt að mótuð sé skýr og framkvæmanlega framtíðarsýn fyrir svæðið sem miðbæjarkjarna Seltjarnarness, þar sem íbúðir, þjónusta og samfélagsrými styðja hvert annað. Slík uppbygging getur aukið mannlíf, styrkt nærþjónustu og tekjustofn sveitarfélagsins.
Þá er mikill söknuður af Félagsheimilinu, sem um árabil hefur verið hjarta menningar og skemmtunar á Seltjarnarnesi. Ég vil beita mér fyrir því að það fái nýtt hlutverk og verði aftur virkur vettvangur fyrir samfélagið. Þar tel ég eðlilegt að kanna samstarf við einkaaðila um uppbyggingu og rekstur, með það að markmiði að tryggja gæði, hraða framkvæmdum og halda skuldsetningu sveitarfélagsins í skefjum
Ég vil áfram leggja ríka áherslu á öflugt skóla-, frístunda- og íþróttastarf, sem er ein besta fjárfesting samfélagsins til framtíðar. Jafnframt legg ég mikla áherslu á að þjónusta við eldri borgara taki mið af virkni, heilsu og félagslegum tengslum, þannig að fólk geti notið góðra lífgæða og verið sem lengst virkir þátttakendur í samfélaginu.
Ég býð mig fram þar sem ég hef gríðarlegan metnað fyrir því að Seltjarnarnes haldi áfram að blómstra og að við tryggjum hér áframhaldandi uppbyggingu í traustu og góðu samfélagi sem þjónar hagsmunum allra bæjarbúa. Sveitarfélög standa frammi fyrir miklum og fjölbreyttum áskorunum í sífellt flóknara rekstrarumhverfi. Því skiptir máli að öflugt fólk með reynslu af rekstri, stefnumótun og langtímahugsun taki þátt í forystu. Með sterkri liðsheild tel ég að hægt sé að snúa áskorunum í sókn og tryggja sveitarfélaginu traustan og sjálfbæran rekstrargrunn til framtíðar.
Kæru Sjálfstæðismenn – ég óska eftir stuðningi ykkar í 2. sæti í prófkjörinu þann 7. febrúar næstkomandi. Saman leiðum við flokkinn til sigurs í kosningunum í vor.
Elísabet Einarsdóttir



