Fjörugur morgunfundur um skipulagsmál

Fundur í Sjálfstæðisfélagi Seltirninga, haldinn laugardaginn 21. janúar 2017, áréttar að hugmyndir arkitekta varðandi miðbæ Seltjarnarness voru einungis lagðar fram sem grundvöllur umræðna bæjarbúa en engar ráðagerðir hafa verið né eru um að taka þær upp í skipulagi.

Við lokagerð skipulags svæðisins ber að taka fullt tillit til hagsmuna og sjónarmiða bæjarbúa.

Ofangreind ályktun var samþykkt samhljóma á fjörugum og vel sóttum fundi félagsins, nú í morgun. Bjarni Torfi Álfþórsson fór m.a. yfir svör og viðbrögð bæjarfélagsins við helstu athugasemdum sem borist hafa vegna aðalskipulags. Fundargestir voru almennt ánægðir með viðbrögð bæjarstjórnar og þær breytingar sem boðaðar eru á skipulagi í kjölfar ábendinga frá bæjarbúum.

Fundargestir voru almennt sammála um að ekki gengi að gefa því undir fótinn að hér á Seltjarnarnesi væri hægt að bjóða ódýrar íbúðir fyrir ungt fólk. Hér er fasteignaverð einfaldlega með því hæsta sem gerist og ekki á valdi bæjarfélagsins að verðleggja húsnæði í eigu annarra. Hins vegar er hægt að leggja áherslu á að íbúðir verði minni og fleiri í þeim nýbyggingum sem fyrirhugaðar eru. Nýjar íbúðir verða þó aldrei ódýrar, allra síst hér og sé litið til Hrólfsskálablokkanna þá hefur fólkið sem þangað hefur flust, verið frekar í eldri kantinum. Það er þó ekki síður mikilvægt að eldri íbúum gefist kostur á að færa sig úr stórum húsum yfir í minni eignir þannig að nýting húsnæðis verði almennt betri og að fjöldi bæjarbúa sé í sem næst kjörstærð fyrir þá þjónustu sem bæjarfélagið getur veitt.

Þá voru ýmis önnur mál rædd, svo sem samgöngumál, hjólastígar, kirkjugarður og hraðahindranir.

Næsti laugardagsfundur félagsins verður laugardaginn 11. febrúar 2017 kl. 10 og er öllum opinn.

Sjálfstæðisfélag Seltirninga býður þér til morgunfundar

Sjálfstæðisfélag Seltirninga boðar til opins félagsfundar laugardaginn 21. janúar 2017 klukkan 10:00 í sal Sjálfstæðisfélags Seltirninga að Austurströnd 3, 3. hæð.

Gestur fundarins: Bjarni Torfi Álfþórsson, formaður skipulags- og umferðarnefndar.

Dagskrá:

1. Skipulagsmál á Seltjarnarnesi
2. Önnur mál

Boðið verður upp á kaffi, rúnstykki og vínarbrauð.

Allir velkomnir,
Stjórnin.