Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins, Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokksins og Vilhjálmur Árnason ritari Sjálfstæðisflokksins boða til fundar á Seltjarnarnesi miðvikudaginn 19. nóvember kl. 20:00 í sal Sjálfstæðisfélagsins Austurströnd 3 á Seltjarnarnesi.
Á fundinum munu þau skýra helstu stefnumál flokksins á yfirstandandi vetri í átt að sterkara Íslandi.
Fundurinn er liður í fundaherferð forystunnar sem standa mun yfir næstu vikur.
Fundurinn er öllum opinn.