Sjálfstæðisfélag Seltirninga hélt opinn félagsfund miðvikudaginn 11. apríl 2018 í sal félagsins að Austurströnd 3. Gestur fundarins var Ólafur Guðmundsson, umferðarsérfræðingur.
Ólafur hélt framsögu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu og ræddi m.a. um þrengingar á gatnakerfinu, hjólastíga, hraðahindranir, umferðarmódel, hugmyndir um borgarlínu og margt fleira. Að lokinni framsögu tók Ólafur á móti fyrirspurnum úr sal.
Fundurinn stóð í tvo tíma. Fundarstjóri var Sigríður Sigmarsdóttir og Anna María Pétursdóttir ritaði fundargerð.
Sjálfstæðisfélag Seltirninga boðar til félagsfundar miðvikudaginn 11. apríl 2018 kl. 20:00 í sal félagsins að Austurströnd 3, 3. hæð.
Gestur fundarins: Ólafur Guðmundsson, umferðarsérfræðingur.
Dagskrá:
1. Samgöngumál
2. Önnur málÓlafur verður með framsögu um samgöngumál sem varða m.a. beina hagsmuni Seltirninga t.d. með tilliti til forgangsaksturs, hugmyndir um borgarlínu o.fl.
Allir velkomnir, kaffiveitingar.
Stjórnin.