Ég er til áframhaldandi þjónustu reiðubúinn!

Kæru vinir og félagar.

Ég hef verið þess heiðurs aðnjótandi að leiða hóp okkar Sjálfstæðismanna og gegna stöðu bæjarstjóra á þessu kjörtímabili sem líður senn undir lok. Það hefur verið einstakt að fá að þjóna bæjarbúum í minni heimabyggð þar sem ég hef alið manninn alla tíð enda stoltur Seltirningur.

Síðastliðin fjögur ár hafa verið afar lærdómsrík, margt hefur unnist vel en mér finnst ég enn hafa verk að vinna og vil áfram gefa af mér til samfélagsins okkar. Ég sækist því eftir áframhaldandi stuðningi ykkar í fyrsta sæti lista okkar Sjálfstæðisfólks á Seltjarnarnesi.

Ég get með sanni sagt að það vantar ekki verkefnin á vettvangi bæjarmálanna og sjaldnast veit ég nákvæmlega hvað dagurinn ber í skauti sér. Óvænt verkefni koma iðulega upp sem bregðast þarf við án tafa enda má ekki verða rof á lögbundinni þjónustu við bæjarbúa.

Áskoranir

Í starfi mínu sem bæjarstjóri hef ég fengið ótal áskoranir í fangið, sú langstærsta var að ráðast í neyðarviðgerðir beggja skólahúsa bæjarins í samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldrasamfélagið. Þetta krafðist mikillar skipulagningar og margt annað varð að víkja á meðan. Velferð fólks og heilsa er hins vegar ávallt forgangsmál. Það þurfti að bregðast strax við enda leið mörgum illa við þær aðstæður sem upp voru komnar og allir höfðu áhyggjur.

Með góðri skipulagningu og samstarfi við alla hagaðila sem ég er afar þakklátur fyrir gekk þetta stóra verkefni upp með þeim hætti að byggingarnar eru að langmestu leyti endurnýjaðar þó að lokaáfangar séu eftir en það sem mestu skiptir er að innivistin er orðin heilnæm að nýju.

Framtíðin

Þrátt fyrir þetta risaverkefni við skólahúsin tókst að hefja langþráðar framkvæmdir við nýjan glæsilegan leikskóla sem var eitt stærsta kosningaloforð okkar Sjálfstæðismanna. Ég vil fylgja þessu mikilvæga verkefni eftir á næsta kjörtímabili auk þess sem ég er að leita allra leiða til að fjármagna áframhaldandi framkvæmdir Félagsheimilisins sem við söknum öll. Ég er stöðugt á vaktinni varðandi ásýnd bæjarins og sé fyrir mér áframhaldandi verklegar framkvæmdir næstu árin þar sem við hlúum að okkar nærumhverfi og gerum bæinn okkar enn fegurri en að mínu mati búum við í fallegasta bæ landsins og tækifærin eru mikil. Ég legg mikla áherslu á að standa vörð um hagsmuni bæjarfélagsins á öllum sviðum t.d. hvað varðar samgöngur, sjóvarnir og sjúkraflutninga. Skynsamleg fjármálastjórn er svo auðvitað grunnur alls er varðar rekstur bæjarins okkar.

Eins og flestir vita þá legg ég mikið upp úr sýnileika og að bæjarbúar hafi greiðan aðgang að mér sem bæjarstjóra. Símanúmerið mitt 780 7777 er alltaf það sama og mér þykir vænt um að fá símtöl frá bæjarbúum sem er velkomið að hringja hvenær sem er.

Bæjarstjórinn ykkar er 58 ára gamall, giftur Maríu Björk Óskarsdóttur viðskiptafræðingi og eigum við fjögur börn, Söru Bryndísi (27), Örnu Björk (25), Mörtu Sif (18) og Daníel Þór (15) sem hafa verið í öllum okkar góðu skólum og stundað íþróttir og tómstundir hér á Nesinu.

Bið um sterkt umboð

Kæru íbúar, ég hvet ykkur til að taka þátt í opnu prófkjöri okkar Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi, laugardaginn 7. febrúar nk. Ég vil áfram vera ykkar fremsti maður og bið því um sterkt umboð í 1. sæti listans.

Þór Sigurgeirsson