„Það er hvergi betra að búa en á Seltjarnarnesi“

Það skiptir máli hvar maður kýs að festa rætur sínar, taka þátt í samfélaginu og leggja sitt af mörkum. Fyrir mér er svarið skýrt: það er hvergi betra að búa en á Seltjarnarnesi.

Magnús Benediktsson heiti ég og býð mig fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.

Ég er fæddur og uppalinn í smáíbúðarhverfinu í Reykjavík. Ég kem úr stórri fjölskyldu og er þríburi. Þrátt fyrir stutta búsetu hef ég látið mig málefni Seltjarnarness varða. En glöggt er gests auga. Það var hún kærasta mín, Hildur Sif Hilmarsdóttir, sem kom mér á nesið.

Sveit í borg lýsir Seltjarnarnesi best. Hér eru boðleiðir stuttar, nálægðin raunveruleg og tengslin sterk. Eftir tæplega þriggja ára búsetu er eitt ljóst: hér vil ég vaxa og dafna.

Við eigum von á okkar fyrsta barni í maí og hefur það breytt því hvernig maður horfir á samfélagið.

Ég hef verið virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins frá sautján ára aldri og er í dag formaður Baldurs, félags ungra sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi. Ég sit jafnframt í sóknarnefnd Seltjarnarneskirkju og er varamaður í stjórn Ríkisútvarpsins.

Ég er menntaður hagfræðingur með BSc-gráðu í hagfræði og meistarapróf í endurskoðun og reikningsskilum og starfa í dag sem sérfræðingur á endurskoðunarsviði PwC. Sú reynsla nýtist vel þegar taka þarf ábyrgðarfullar ákvarðanir um rekstur og forgangsröðun.

Áherslumálin mín eru eftirfarandi:

Rekstur bæjarins verði ábyrgur
Rekstur bæjarins hefur verið í halla síðastliðin ár. Halda þarf fast í taumana í fjármálum bæjarins, þó að við séum á réttri leið. Ábyrg fjármál eru forsenda góðrar þjónustu til framtíðar.

Skattar ekki hækkaðir
Ég leggst gegn skattahækkunum, hvort sem um er að ræða útsvar eða fasteignagjöld. Bærinn á að reka sig vel án þess að auka byrðar á íbúum.

Upplyfting á Valhúsahæðinni
Það er kominn tími á löngu tímabæra upplyftingu á Valhúsahæðinni. Gera þarf núverandi útsýnispall sómasamlegri og skoða þarf byggingu á hóflegu hundagerði.

Leikskólamálin löguð
Mín stefna er skýr í þessu máli: öll börn eiga að fá innritun í leikskóla á því innritunarári sem þau ná 12 mánaða aldri. Það skiptir fjölskyldur öllu máli að geta treyst á þessa þjónustu.
Ég mun beita mér fyrir því að heimgreiðslur verði í boði fyrir þá foreldra sem ekki ná að innrita börnin sín á því ári sem þau ná 12 mánaða aldri.

Opnunartími sundlaugarinnar lengdur til 22:00
Opnunartími sundlaugarinnar var styttur og lokar hún nú klukkan 21:00 á kvöldin. Þessi hagræðingaraðgerð á að spara bænum 25 milljónir króna á ári, en sparnaðurinn bitnar verulega á íbúum, sérstaklega ungu fólki sem sækir sund seint á kvöldin.

Framkvæmdir settar aftur af stað á félagsheimilinu
Félagsheimilið er órjúfanlegur þáttur í lífi margra Seltirninga. Ég tel að bærinn eigi að halda áfram með endurbæturnar í áföngum og tryggja að félagsheimilið opni aftur.

Byggt verði af ábyrgð
Tveir stórir reitir eru nú í byggingarfasa, Austurströnd og Eiðistorg. Á þessum svæðum skiptir miklu að uppbyggingin verði skynsöm. Þar þarf að horfa til gæða, samsetningar íbúða og aðgengis – en ekki eingöngu fjölda fermetra.

Samtal við bæjarbúa styrkt
Bæjarbúar eiga að hafa meiri aðkomu að stórum málefnum.

Lífið er afar gott hérna á Seltjarnarnesi og ég vil að svo haldist áfram.
Nái ég kjöri mun ég leggja mig allan fram í þágu bæjarbúa og berjast fyrir þessum áherslum. Það er alltaf hægt að hringja í mig í síma 781-7023 og slá á þráðinn.