Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ræddi um stöðu ferðamála á Íslandi í dag í góðu og skemmtilegu erindi. Fjöldi fyrirspurna kom úr sal og sköpuðust líflegar umræður.
Við þökkum Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og gestum kærlega fyrir komuna í kvöld.
Fundur um stöðu ferðamála þriðjudaginn 16. október 2018 kl. 19:30 í sal félagsins
Sjálfstæðisfélag Seltirninga boðar til félagsfundar þriðjudaginn 16. október 2018 kl. 19:30 í sal félagsins að
Austurströnd 3, 3. hæð.Gestur fundarins: Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Umræðuefni: Þórdís Kolbrún verður með framsögu um stöðu ferðamála í dag.Allir velkomnir, kaffiveitingar.
Stjórnin.