Fjölmenni var á fundi félagsins í kvöld um stöðu XD á landsvísu með Styrmi Gunnarssyni

Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins til 36 ára ræddi um stöðu Sjálfstæðisflokksins á landsvísu í skemmtilegu og opinskáu erindi. Fjöldi fyrirspurna kom úr sal og sköpuðust líflegar umræður.

Við þökkum Styrmi og gestum kærlega fyrir komuna í kvöld.

 

Fundur um stöðu XD á landsvísu þriðjudaginn 8. maí 2018 kl. 20:00 í sal félagsins

Sjálfstæðisfélag Seltirninga boðar til félagsfundar þriðjudaginn 8. maí 2018 kl. 20:00 í sal félagsins að Austurströnd 3, 3. hæð.

Gestur fundarins: Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins.
Umræðuefni: Staða Sjálfstæðisflokksins á landsvísu.

Allir velkomnir, kaffiveitingar.
Stjórnin.