Stefna í málefnum eldri bæjarbúa
Unnið hefur verið að mótun stefnu í málefnum eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi, enda hefur íbúum 60 ára og eldri fjölgað og þeir orðnir stór hluri af heildaríbúafjölda bæjarins. Ýmsir hagaðilar komu að mótun stefnunnar og var hún samþykkt í á fundi bæjarstjórnar 11. júní síðastliðinn og hefur því öðlast formlegt gildi. Stefnan byggir á lögum, reglugerðum og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og eru áherslur í samræmi við forvarna- og lýðheilsustefnu Seltjarnarnesbæjar.
Það á að vera gott að eldast á Nesinu
Seltjarnarnesbær vill leggja áherslu á velferð og vellíðan eldri bæjarbúa, stuðla að heilsueflingu, geðrækt, öruggu umhverfi, góðu skipulagi, virkni og samfélagslegri ábyrgð. Mikilvægt er að virkja reynslu og þekkingu eldri bæjarbúa og hvetja þá til sjálfs- og valdeflingar. Tryggja að fjölbreyttur félagsauður eldra fólks og fjölskyldna þeirra verði virkjaður til samstarfs og þátttöku.Við viljum leggja áherslu á þátttöku og samveru eldra og yngra fólks til að vinna gegn aldursfordómum. Hafa félagsmiðstöð með fjölbreytt félagsstarf og tómstundaiðkun og hvetja til félagslegrar virkni til að sporna við félagslegri einangrun.
Í bæjarfélaginu viljum við leggja áherslu á samþætta persónumiðaða þjónusta og samstarf þeirra sem koma að málaflokknum, svo sem heilsugæslu, félagsþjónustu, tómstundastarf og íþróttafélög. Unnið verður að samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu í samvinnu ríkis og sveitarfélags og heilbrigðisþjónusta í heimabyggð er í samstarfi við Heilsugæsluna á Seltjarnarnesi.
Upplýsingastreymi og stofnun teymis
Mikilvægt er að nýta fjölbreyttar og notendavænar leiðir til að miðla upplýsingum sem varða málefni eldri bæjarbúa, til dæmis heimasíður, veggspjöld og fleira. Efla í því samhengi samstarf við FEBSEL, Gróttu, heilsugæsluna Seltjarnarnesi og Seltjarnarneskirkju. Hinir ýmsu aðilar sem koma að málefnum eldri bæjarbúa þurfa að huga að reglulegri fræðslu til dæmis um fjármál við starfslok, skatta, réttindi, fasteignagjöld, menningu, hreyfingu, næringu og heilsu, virkni og þátttöku, sjálfboðastarf, umönnun ættingja, samskipta kynslóðanna og fleira.
Áhersla er á stofnun teymis í málefnum eldri bæjarbúa sem hefur það að markmiði að tryggja samvinnu milli allra aðila, koma stefnunni á framfæri og ekki síst að koma henni í framkvæmd. Ábyrgðarmaður teymisins mun þá vera starfsmaður bæjarfélagsins, til að mynda verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs og í teyminu sitja forstöðumaður frístundastarfs eldri bæjarbúa, fulltrúar frá FEBSEL, fulltrúar frá heilsugæslu, ýmsir hagaðilar og aðrir sem að málefnum eldri bæjarbúa koma.
Á hugmyndaborðinu er einnig að halda svokallað virkniþing þar sem allir hagaðilar er tengjast málefnum eldra fólks eru velkomnir að kynna sig og sín störf. Vonandi tekst að koma því til leiðar sem fyrst.
Til hamingju með fyrstu stefnuna í málefnum eldra fólks á Seltjarnarnesi.

Hildigunnur Gunnarsdóttir, formaður fjölskyldunefndar og öldungaráðs.



