Haustfögnuður Kríu í UMI Studio!
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, heimsækir Kríu, félag sjálfstæðiskvenna á Seltjarnarnesi, fimmtudaginn 9. október kl. 20.
Ásdís mun meðal annars ræða fyrirhugaðar aðgerðir Kópavogs í menntamálum og segja frá helstu áherslum í þeim efnum. Þetta er einstakt tækifæri til að heyra beint frá bæjarstjóra um hennar framtíðarsýn. Þá ræðir hún um árangur bæjarins í leikskólamálum eftir innleiðingu Kópavogsmódelsins svokallaða.
Fundurinn verður haldinn í UMI Studio sem er í eigu Seltirningsins Maríönnu Pálsdóttur.
Að loknu erindi Ásdísar gefst tækifæri til umræðna og spurninga. Léttar veitingar verða í boði og hvetjum við konur á Seltjarnarnesi til þess að nýta tækifærið til að hittast, spjalla og njóta kvöldsins saman.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórn Kríu
Kría vekur athygli á að hægt er að skrá sig í félag sjálfstæðiskvenna á Seltjarnarnesi undir mínar síður á heimasíðu sjálfstæðisflokksins: xd.is



