Kæru Seltirningar.
Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að starfa með Seltirningum þetta kjörtímabil. Þetta hefur verið lærdómsríkur og skemmtilegur tími. Mig langar til að halda áfram að sinna málefnum eldri bæjarbúa og nýta menntun mína og áratuga reynslu á sviði uppeldis- og menntunar í þágu skólasamfélagsins á Seltjarnarnesi. Ég hef mikla reynslu af opinberri stjórnsýslu og ber hag bæjarfélags míns fyrir brjósti. Ábyrg fjármálastjórn skiptir öllu máli og mun reynsla mín í opinberri stjórnsýslu nýtast vel. Það er mikil ábyrgð að höndla með skattfé bæjarins svo grunnþjónusta og innviðauppbygging sé sem best. Tryggja verður skýra verkferla og forgangsröðun í þágu þess sem mestu máli skiptir.
Ég er sérfræðingur í uppeldis- og menntamálum með áherslu á menntarannsóknir, stefnumótun, mat á skólastarfi og stjórnun menntastofnana.
Ég hef áratuga reynslu af fjármálastjórn, sveitarstjórnarmálum, kennslu og náms- og starfsráðgjöf á grunn-, framhalds- og háskólastigi.
Á núverandi kjörtímabili hef ég verið varabæjarfulltrúi og gegnt formennsku í fjölskyldunefnd og öldungaráði.
Á kjörtímabilinu vann ég að mótun nýrrar forvarna- og lýðheilsustefnu og fyrstu stefnu í málefnum eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi, sem samþykktar voru af bæjarstjórn á þessu kjörtímabili.
Ég er ritstjóri nýrrar menntastefnu Seltjarnarnesbæjar sem unnin er í samvinnu við hagaðila og styttist í að hún verði lögð fyrir skólanefnd og í framhaldinu fyrir bæjarstjórn.
Ég hef alla tíð látið málefni Seltjarnarness mig varða. Með það að leiðarljósi legg ég áherslu á:
Ábyrga fjármálastjórn og rekstur
Stafræna þróun og endurskoðun verkferla til að draga úr kostnaði
Metnaðarfullt og faglegt leik- og grunnskólastarf
Farsæld barna og ungmenna
Forvarnir og lýðheilsu í forgrunni fyrir alla aldurshópa
Trausta innviði og gott aðgengi að allri grunnþjónustu
Virkni og virðingu fyrir ævistarfi eldri bæjarbúa
Ég og Ásbjörn Jónsson eiginmaður minn höfum búið á Seltjarnarnesi í rúma fjóra áratugi. Við höfum notið þess að búa í nálægð við náttúruna og gott mannlíf. Við eigum þrjú börn sem öll hafa verið nemendur í leik-, grunn- og tónlistarskóla á Seltjarnarnesi og iðkað íþróttir með Gróttu. Öll búa þau á Seltjarnarnesi. Við eigum fimm barnabörn þar af fjögur á leikskólaaldri. Seltjarnarnes á að vera fjölskylduvænt og það á að vera gott að búa og eldast á Seltjarnarnesi í góðu nærumhverfi þar sem stutt er í hreyfingu og útivist og alla grunnþjónustu.



