Kæru Seltirningar,

Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í 3. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi í febrúar.

Ég er uppalinn á Nesinu, giftur þriggja barna faðir og starfa sem forstöðumaður hjá Símanum. Ég naut þeirrar gæfu að mótast af öflugu skóla-, íþrótta-, og æskulýðsstarfi hér á Nesinu. Nú langar mig að gefa til baka og taka þátt í því að efla grunnþjónustu bæjarins enn frekar í okkar góða samfélagi.

Grunnur þess að geta haldið úti öflugri grunnþjónustu er ábyrg fjármálastjórn og er fyrsta verkefnið hallalaus rekstur A-hluta á öllu kjörtímabilinu án þess að grípa til skattahækkana en nóg er um slíkar hjá vinstri stjórn landsins að ekki er á bætandi ef sveitastjórnir fari einnig að seilast dýpra í vasa almennings. Þetta er krefjandi verkefni sem krefst skýrrar forgangsröðunar þar sem grunnþjónusta gengur fyrir.

Við eigum að nýta stafrænar lausnir markvissar til hagræðingar í rekstri með einföldun ferla og fækkun óþarfa handtaka sem mun spara tíma bæði íbúa og starfsfólks. Samhliða því vil ég auka gagnsæið um fjármál bæjarins með stafrænu mælaborði fyrir íbúa þar sem helstu lykiltölur eru sýndar á mannamáli.

Seltjarnarnes á að vera meðal bestu staða á landinu til að ala upp börn. Ég vil að samtal kjörinna fulltrúa við skólastjórnendur, starfsfólk og foreldra sé reglulegur hluti ákvörðunartöku til framtíðar. Við eigum að einfalda líf foreldra með litlum verkefnum, t.d. að hægt verði að hlaða skóladagatölum bæjarins beint inn í persónuleg dagatöl.

Í nýju fyrirkomulagi leikskólanna vil ég að sveigjanleiki fyrir lægri leikskólagjöldum verði gerður raunverulegur og ekki bundinn við einn dag sem er ákveðinn af kerfinu.

Íþrótta- og æskulýðsstarf er ein besta forvörn sem við eigum. Markmið bæjarins með stuðningi við starfið á að vera að halda börnum og ungmennum sem lengst í skipulögðu starfi og tryggja að aðstaðan styðji við það markmið.

Það er mikilvægt að íbúar finni að þeir tilheyri. Að þeir viti hvað er að gerast og hvert við erum að fara. Ég vil að við aukum sýnileika og samskipti t.d. með útgáfu rafræns fréttabréfs til bæjarbúa þar sem sagt er frá fólkinu, skólunum, íþrótta- og félagsstarfi, þjónustu og verkefnum á mannamáli.

Ég vil að Eiðistorg verði formlega skilgreint sem miðbær Seltjarnarness og að sett verði fram tímasett, framkvæmanleg áætlun um næstu skref. Þar á að hanna torg sem er með rými fyrir markaði, viðburði, þjónustu, verslun og veitingastaði. Við eigum að draga einkaaðila að borðinu þar sem það skilar betri niðurstöðu – bæði í uppbyggingu og rekstri – en alltaf með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.

Félagsheimilið, vígt 1971, hefur verið vettvangur minninga margra Seltirninga. Ég vil að það fái nýtt upphaf sem kjarni menningar- og félagslífs með reglulegri dagskrá, viðburðum og samkomum. Ég tel líka eðlilegt að skoða aðkomu einkaaðila að uppbygingu og rekstri hússins með langtíma rekstrarsamning í huga en þó með því skilyrði að húsið þjóni áfram fyrst og fremst íbúum.

Þjónusta við eldri borgara á að endurspegla framlag þeirra til samfélagsins. Ég vil efla verkefni sem byggja upp heilsu, hreyfingu og félagsleg tengsl – til dæmis með fleiri verkefnum á borð við Frísk í Gróttu í samstarfi við íþróttafélög bæjarins. Ég vil líka að við hugsum uppbyggingu íbúða t.d. að hluta til á Orkureitnum með þarfir þessa hóps í huga.

Þegar kemur að samgöngumálum er ljóst að Seltjarnarnes þarf sterka rödd í hagsmunagæslu gagnvart nágrönnum okkar. Sífelldar þrengingar á leiðum til og frá Nesinu mega ekki stefna öryggi í hættu. Ég vil leggja mikla áherslu á að sjúkrabíll verði staðsettur hér á Seltjarnarnesi til að geta brugðist hraðar við. Að auki vil ég setja öryggi barna og ungmenna í forgang hér innanbæjar á helstu leiðum milli hverfa, skóla og íþróttamannvirkja en þar eiga lýsing, gangbrautir og hraðastýringar einfaldlega að vera í lagi.

Sjálfstæðisfólk á Seltjarnarnesi – ég óska eftir stuðningi ykkar í 3. sæti í komandi prófkjöri. Flokkurinn á að fara í sóknarhug í komandi kosningar og ég er viss um að reynsla mín úr stjórnun og rekstri, afreksíþróttum og þjálfun muni nýtast vel í þeirri baráttu sem fram undan er.

Kær kveðja,

Lárus Gunnarsson