Skólamál eru okkur mikilvæg á Seltjarnarnesi enda leggur góð menntun grunn að velferð og framtíð samfélagsins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur markvisst unnið að bættum skólabrag á kjörtímabilinu. Margt jákvætt hefur gerst í skólamálum bæjarins að undanförnu og verkefni verið unnin af festu og framsýni.
Skipting Grunnskóla Seltjarnarness í tvo sjálfstæða skóla, Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla, á yfirstandandi skólaári hefur til að mynda gefist afar vel. Með breytingunni náðum við fram bæði rekstrarlegri hagkvæmni og betri faglegri yfirsýn í stjórnun skólanna. Fyrir skiptinguna var skólinn einn af tíu fjölmennustu skólum landsins, en með uppskiptingu skólanna hefur álagið dreifst betur og gæði kennslunnar eflst.
Þjónustustig skólanna er hátt og við leggjum sérstaka áherslu á snemmtækan stuðning við nemendur sem þurfa aðstoð. Nýverið lauk faglegri úttekt á sérkennslu í grunnskólunum sem mun nýtast til að bæta þjónustuna enn frekar.
Þá er í smíðum ný og metnaðarfull menntastefna bæjarins fyrir skóla- og frístundastarf. Hagaðilum í skólasamfélaginu; kennurum, starfsfólki skóla og frístundamiðstöðvar, foreldrum og nemendum, var gefið tækifæri til að tjá hug sinn og hafa áhrif á menntastefnuna. Drög að stefnunni eru í kynningu fyrir hagaðilum og hlökkum við til að birta nýja stefnu von bráðar.
Í haust tóku gildi nýjar reglur um símanotkun í Valhúsaskóla, undir yfirskriftinni Símafriður, en sambærilegar reglur voru þegar í gildi í Mýrarhúsaskóla.
Símafriður ríkir ekki einungis í kennslustundum og frímínútum, heldur einnig almennt innan veggja skólans, á skólalóðinni, í vettvangsferðum, skólaferðalögum, íþróttum og sundi. Friður frá símum hefur skapað meira rými fyrir samskipti, aukið einbeitingu og eflt skólabrag og við viljum sérstaklega hvetja foreldra og nemendur til að standa áfram saman að þessu mikilvæga málefni.
Í Valhúsaskóla hefur upphafi skóladags verið seinkað um 20 mínútur, til 8:30. Rannsóknir hafa enda sýnt að vegna seinkunar á líkamsklukku unglinga þá geti seinkun á upphafi skóladags haft í för með sér betri líðan, heilsu og námsárangur. Breytingin hefur slegið í gegn hjá þeim unglingum sem geta nú sofið lengur en ella.
Sjálfstæðisflokkurinn á Seltjarnarnesi hefur einbeitt sér að því að klára nauðsynleg viðhaldsmál á skólahúsnæði grunnskólanna beggja á kjörtímabilinu til að tryggja starfsfólki og nemendum skólanna heilsusamlegt starfsumhverfi. Umfangsmiklar mygluframkvæmdir hafa farið fram bæði í Valhúsaskóla og Mýrarhúsaskóla og hefur kostnaður við þær numið yfir 1.200 m.kr. til þessa. Framkvæmdum hefur miðað vel en enn á eftir að skipta um þak Mýrarhúsaskóla og klæða útveggi Valhúsaskóla og er það verkefni næstu missera.
Eitt af því sem margir hafa kallað eftir er betri skólalóð við Mýrarhúsaskóla. Við því hefur verið brugðist í áföngum, af ábyrgð og með skýra sýn. Ný skólalóð er bæði stór framkvæmd og fjárfesting. Við fórum því í framkvæmdir í áföngum samhliða framkvæmdum á skólahúsnæði Mýrarhúsaskóla.
Nú þegar hefur skólalóðin verið girt af með öryggi skólabarna í huga, búið er að setja niður þrjú trampólín umkringd gúmmímottum og gervigrasi og þá er búið að bæta við fjórum litlum mörkum á fótboltavöllinn svo hann nýtist fleiri hópum í einu. Endurbætur halda áfram á næstu misserum í samræmi við teikningar sem liggja fyrir.
Eitt kosningaloforða Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2022 var að hefja byggingu nýs leikskóla á horni Nesvegar og Suðurstrandar. Hönnunin á glæsilegum átta deilda leikskóla er unnin af verðlaunaarkitektum og öll gögn hafa verið tilbúin um hríð.
Framkvæmdir höfðu dregist vegna stórframkvæmdanna í grunnskólahúsnæði bæjarins, en nú þegar sér fyrir endann á þeim framkvæmdum hefur útboð á byggingu nýja leikskólans verið formlega auglýst. Áætlaður byggingartími er um 2 ár.
Heildarkostnaður við bygginguna er sambærilegur við kostnað við mygluframkvæmdir, sem útskýrir hvers vegna útboði var frestað.
Vegna tafa á byggingu nýs leikskólahúsnæðis var ráðist í að setja upp nýja leikskólaeiningu, Stjörnubrekku, sem er á horni Skólabrautar við Mýrarhúsaskóla, fyrir elstu leikskólabörnin.
Í haust er enn fremur stefnt að því að opna nýja 16 barna deild í Ungbarnaleikskóla Seltjarnarness til viðbótar við þá 16 barna deild sem þegar er til staðar í leikskólanum. Með því er hægt að veita 16 fleiri börnum pláss en gert hefur verið síðustu ár, og þannig komið til móts við óvenjustóran árgang barna sem fædd eru fyrri hluta árs 2024. Nýja deildin verður í húsnæði kirkjunnar og verður lóðin aðlöguð starfseminni á sumarmánuðum.
Við erum stolt af þeirri þjónustu sem leik- og grunnskólabörnum býðst í skólum bæjarins og erum markvisst að vinna að því að bæta gæði skólastarfsins.
Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, formaður skólanefndar.
Ragnhildur Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar.



