Haldinn verður opinn fundur með frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisfélags Seltirninga mánudaginn 2. febrúar í Valhúsaskóla klukkan 20.
Þar munu frambjóðendur kynna sig og sín helstu áhersluatriði og síðan gefst fundargestum tækifæri á að spyrja frambjóðendur spurninga. Einnig verður hægt að senda inn spurningar fyrir fund á netfangið ingimars@simnet.is eða með sms í síma 896-7800.
Hvetjum alla til að mæta og kynnast þessu frábæra fólki sem er í framboði.
-Kjörnefnd Sjálfstæðisfélags Seltirninga



