Samþykkt samhljóða að efna til opins prófkjörs laugardaginn 20. janúar 2018

Á fjölmennum fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi, sem haldinn var fimmtudaginn 21. september 2017, var ákveðið hvernig standa skyldi að vali á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar í lok maí á næsta ári.

Samþykkt var samhljóða að efna til opins prófkjörs laugardaginn 20. janúar 2018. Prófkjörið verður opið öllum stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins skv. félagaskrá.

Prófkjörið verður formlega auglýst síðar og mun kjörstjórn tilkynna framboðsfrest og nánari upplýsingar um prófkjörið í Nesfréttum, facebook og á heimasíðu félagsins.