Samþykkt samhljóða að efna til opins prófkjörs

Á fjölmennum fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi þann 13. nóvember var samþykkt að efna til opins prófkjörs fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar árið 2026 en jafnframt var kosið um kjörnefnd sem fer með framkvæmd prófkjörsins. Kjörnefnd hefur nú ákveðið nánari útfærslu prófkjörsins en prófkjörið mun fara fram laugardaginn 7. febrúar 2026.

Framboðsfrestur er til laugardagsins 10. janúar 2026 en prófkjörið verður auglýst á næstu dögum og verða nánari upplýsingar sendar í tölvupósti til allra félagsmanna og á Facebook-, Instagram- og heimasíðu félagsins.