Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefur verið byggð upp sterk og samfelld þjónusta við börn og fjölskyldur á Seltjarnarnesi. Skóla- og íþróttastarf er skipulagt þannig að foreldrar geta lokið vinnudegi sínum án þess að þurfa að hlaupa úr vinnu til að skutla börnum í tómstundir. Þetta er ekki sjálfgefið á höfuðborgarsvæðinu en endurspeglar þau lífsgæði sem Seltirningar njóta.
Nýr leikskóli – brúum bilið
Nýr leikskóli, sem nú er í byggingu, mun rúma um 150 börn á átta deildum og marka mikilvæg tímamót fyrir unga foreldra. Þar með er loksins stigið stórt skref til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla en það hefur lengi verið eitt stærsta hagsmunamál fjölskyldna. Fram að þessu ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða upp á biðlistagreiðslur fyrir foreldra barna frá 12 mánaða aldri.
Stöðugleiki og fyrirsjáanleg þjónusta
Áhersla Sjálfstæðisflokksins á hátt þjónustustig hefur skilað sér í leikskólum þar sem foreldrar vita að hverju þeir ganga. Foreldrar á Seltjarnarnesi geta treyst því að þjónustan haldist stöðug, án óvæntra lokana eða skerðinga. Slíkur stöðugleiki er forsenda þess að fjölskyldulíf gangi upp.
Í leikskólum bæjarins er hlutfall fagmenntaðs starfsfólks með því hæsta sem gerist á landinu. Það skilar sér í auknum gæðum í starfi, meiri stöðugleika og betri stuðningi við þroska barna. Þetta er mikilvægt að varðveita og efla áfram.
Nýtt leikskólamódel – meiri sveigjanleiki og samkeppnishæfir vinnustaðir
Með nýju leikskólamódeli er stigið raunverulegt skref í átt að nútímalegra og fjölskylduvænna umhverfi. Markmiðin eru skýr:
- að styrkja leikskólana sem aðlaðandi vinnustaði;
- að bæta námsaðstæður barna, og
- að tryggja áfram fyrirsjáanleika fyrir foreldra.
Nýja módelið eykur sveigjanleika foreldra og býður meðal annars upp á afslátt af leikskólagjöldum fyrir börn sem eru sótt fyrir kl. 14 á föstudögum. Viðtökurnar hafa verið mjög góðar en um helmingur foreldra hefur nýtt sér þessa leið.
Hæsta sveitarfélagið á landinu í lesfimi
Nemendur á Seltjarnarnesi hafa mælst með besta árangur landsins í lesfimi í fimm ár í röð, frá 2020. Munurinn milli sveitarfélaga er verulegur og Seltjarnarnes trónir á toppnum og Garðabær þar á eftir. Skipting Grunnskóla Seltjarnarness í tvo sjálfstæða skóla, sem ráðist var í undir forystu Sjálfstæðisflokksins, hefur tryggt faglega yfirsýn, aukið markvissa eftirfylgni og bætt rekstrarhagkvæmni. Þetta eru breytingar sem skila árangri í kennslu og námi.
Símafriður
Í byrjun árs 2025 var símabann innleitt í Valhúsaskóla en í Mýrarhúsaskóla hefur slíkt bann verið í gildi um langt skeið. Sú breyting hefur haft afgerandi jákvæð áhrif á skóla andann í Valhúsaskóla en á sama tíma var tækjakostur skólans efldur til muna. Viðbrögð hafa verið mjög góð og dregið hefur verulega úr neteinelti og óviðeigandi miðlun mynda. Skólastjórnendur eiga hrós skilið fyrir árangursríka innleiðingu símabannsins og ábyrgð foreldra er ekki síður mikilvæg. Við þurfum að standa með skólanum, ekki síst þegar kemur að því að virða reglur í skólaferðalögum. Samhent sveitarfélag skilar árangri.
Fjölskyldubærinn Seltjarnarnes
Það er ekki tilviljun að Seltjarnarnes telst til fjölskylduvænustu sveitarfélaga landsins. Það er árangur af forystu Sjálfstæðisflokksins. Við höfum óbilandi trú samfélaginu okkar og stefna Sjálfstæðisflokksins byggir á skýrri sýn um að setja fjölskylduna í forgang í allri ákvarðanatöku. Með ábyrgum rekstri hefur tekist að tryggja stöðuga grunnþjónustu án skerðinga og um leið skapa svigrúm til áframhaldandi uppbyggingar og umbóta. Með þessari stefnu er ekki aðeins verið að reka sveitarfélag, heldur byggja upp samfélag þar sem daglegt líf gengur upp, börn fá að blómstra og fjölskyldur njóta raunverulegra lífsgæða.
Magnús Benediktsson skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi
Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, formaður skólanefndar og skipar 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi



