Símafriður – viðtal við Helgu Þórdísi Jónsdóttur, skólastjóra Valhúsaskóla

Kría, félag sjálfstæðiskvenna á Seltjarnarnesi, fagnar nýlegri ákvörðun Valhúsaskóla um að innleiða símabann og óskaði eftir stuttu innleggi frá skólastjóranum. Símamál hafa verið til umræðu í skólanefnd og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hvatt til skýrari reglna í Valhúsaskóla í þágu betra námsumhverfis. Nú hefur skólinn tekið mikilvægt skref og innleitt símafrið og er það fyrst og fremst skólastjórnendum að þakka, sem unnu að innleiðingunni af mikilli fagmennsku. Frábært fyrir nemendur, kennara og allt skólasamfélagið á Nesinu.


Helga Þórdís Jónsdóttir,
skólastjóri Valhúsaskóla.    

Helga Þórdís Jónsdóttir, skólastjóri Valhúsaskóla, svaraði nokkrum spurningum um hinn svokallaða símafrið í skólanum.

Hvenær var símafriðurinn formlega innleiddur í Valhúsaskóla?

Símafriður hófst hjá okkur um í byrjun janúar 2025. Við vorum búin að undirbúa nemendur vel fyrir símafrið. Við áttum ansi mörg góð samtöl við nemendur þar sem þeir voru að reyna telja okkur trú um að þeir gætu hreinlega ekki verið án síma.

Nemendurbentu á að þeir væru að nýta símana í ansi mörg verkefni í skólanum. Því var tekin ákvörðun um að bæta í tækjakost skólans og kaupa inn fleiri Ipada sem þjóna svipuðum tilgangi og símar.


Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, 
formaður skólanefndar.

Hver hafa viðbrögð foreldra, nemenda og kennara verið við breytingunni?

Viðbrögð foreldra hafa verið mjög góð. Við höfum fengið marga pósta þar sem foreldrar lýsa yfir mikilli ánægju með símafriðinn. Foreldrar hafa talað um að þeir finni mun á barni sínu og það séu ekki eins flókin vandamál hvað símanotkun varðar.

Enginn neikvæður póstur hefur borist frá foreldrum. Það hafa þó komið fyrirspurnir með ferðalög á vegum skólans og hvort að símarnir fái ekki að fara með í þær ferðir.

Nemendur hafa ekki kvartað mikið yfir þessu, það voru örfáar raddir sem heyrðust í byrjun en þær raddir voru fljótar að þagna. Nú þegar það er komin smá reynsla á símfriðinn þá hafa nemendur talað um að þetta sér miklu betra. Kennarar voru ekki mjög bjartsýnir í upphafi og töldu að vinnan í kringum símafriðinn yrði mikil. Annað hefur komið í ljós og hafa kennarar talað um að þeir trúi því ekki hvað þetta hefur gengið vel.

Hver eru helstu markmið símafriðarins?

Helstu markmið með símafrið hjá okkur í Valhússkóla eru:

• Að auka einbeitingu nemenda í kennslustundum.

• Að bæta félagsleg samskipti nemenda í frímínútum og hópvinnu án truflana.

• Að draga úr neteinelti og óviðeigandi miðlun mynda tengdu snjalltækjanotkun.

• Að stuðla að jafnræði þar sem nemendur eru ekki metnir eftir tækjum.

Á símafriðurinn aðeins við um kennslustundir eða einnig frímínútur, hádegishlé og skólaferðalög?

Símafriðurinn á við í kennslustundum, frímínútum, hádegishlé og skólaferðalögum. Við tókum þá ákvörðun strax að símar eru ekki meðferðis í ferðir á vegum skólans. Við höfum bent nemendum og foreldrum á að kaupa einnota myndavélar eða að grafa upp gömlu vélarnar.

Hvaða breytingum hefur þú tekið eftir í samskiptum nemenda eftir að símafriðurinn var tekinn upp? Hefur símafriðurinn t.d. haft áhrif á einbeitingu, samskipti eða líðan nemenda?

Það er ótrúlega gaman að rölta um ganga skólans og heyra raddir nemenda. Þeir eru niðursokknir í spjall og ýmsa leiki. Við ákváðum að kaupa meiri afþreyingu fyrir nemendur til þess að þeir hafi eitthvað við að vera í frímínútum. Við keyptum þythokkí, fótboltaspil og margskonar borðspil. Við erum með miðrými í skólanum þar sem við erum með borðtennis- og þythokkíborð sem og fótboltaspil. Í einni álmunni í skólanum erum við búin að koma upp borðum og stólum og hillu með mismunandi borðspilum.

Hvernig hafa kennarar og starfsfólk upplifað breytinguna í kennslustofunum og á göngunum?

Hér í skólanum eru allir mjög ánægðir með að símafriður hafi verið settur á. Breyting í skólastofum er sú að kennari þarf ekki í upphafi tímans að eyða tíma í að fá nemendur til þess að setja síma niður og það er ekki truflun af símum. Nemendur voru mjög uppteknir af ýmsum tilkynningum sem voru að berast í síma þeirra og áttu erfitt með að einbeita sér að námi sínu. Starfsfólk er bara himinlifandi yfir því að það heyrist loks í nemendum og að það er líf og fjör á göngum skólans.

Sjálfstæðisfólk á Seltjarnarnesi fagnar þessari mikilvægu ákvörðun að innleiða símafrið í Valhúsaskóla og þakkar skólastjórnendum fyrir gott samstarf.