Skóla-, íþrótta- og tómstundamál á Seltjarnarnesi, margt jákvætt í deiglunni

Haustið hefur farið vel af stað í skóla- og frístundastarfi á Seltjarnarnesi. Ný menntastefna hefur litið dagsins ljós, nýtt fyrirkomulag í leikskólastarfinu hefur skilað ánægjulegum árangri og félagsmiðstöðin Selið hefur fengið nýtt og glæsilegt húsnæði. Samhliða þessu hefur stjórnsýsla bæjarins verið einfölduð með sameiningu nefnda. Það er því af nógu að taka þegar litið er yfir það sem hefur verið að gerast í málefnum barna og ungmenna á Nesinu.

Ein nefnd, heildstæðari sýn

Undanfarna mánuði hefur farið fram umfangsmikil endurskoðun á rekstri og stjórnsýslu Seltjarnarnesbæjar. Einn liður í þeirri vinnu er sameining skólanefndar og íþrótta- og tómstundanefndar í eina nefnd skóla- íþrótta- og tómstundamála.
Markmiðið er einfalt, að einfalda stjórnsýsluna, nýta tíma og fjármuni betur og skapa heildstæðari sýn á þjónustu við börn og ungmenni. Skólastarf, íþróttir og tómstundir eru enda ekki aðskildir heimar heldur samofnir þættir í uppeldi, þroska og velferð barna.

Ný menntastefna, skýrari sýn á námsárangur

Eitt af síðustu verkefnum fráfarandi skólanefndar var að samþykkja nýja menntastefnu fyrir Seltjarnarnes. Í menntastefnunni er meðal annars kveðið skýrt á um innleiðingu samræmdra stöðu- og framvinduprófa í öllum þeim árgöngum sem slík próf standa til boða. Þetta skiptir máli. Við eigum að gera ríkar kröfur til skólastarfsins og hafa metnað til að grunnskólar Seltjarnarness verði áfram í fremstu röð. Til þess þurfum við að vita hvar við stöndum, hvað gengur vel og hvar tækifæri eru til úrbóta. Með markvissum mælingum fá kennarar, foreldrar og nemendur skýra mynd af stöðu og framvindu í námi og skólarnir traustari grunn til að þróa kennsluna.

Seltjarnarnesbær hefur jafnframt óskað eftir niðurstöðum PISA rannsóknarinnar fyrir sveitarfélagið. Það er liður í því að fylgjast betur með námsárangri og þróun skólastarfsins. Metnaður í skólamálum felst ekki aðeins í því að vilja góðan árangur, heldur líka í því að þora að mæla hann og nýta niðurstöðurnar til framfara

Nýtt leikskólafyrirkomulag, breytingar sem skila árangri

Ein ánægjulegasta þróunin á þessu ári hefur átt sér stað í leikskólamálum bæjarins. Nú er lokið sex mánaða reynslutímabili nýs fyrirkomulags í leikskólastarfi. Markmiðið með breytingunum var meðal annars að bæta starfsumhverfi, tryggja stöðugleika, draga úr líkum á mönnunarvanda og lágmarka hættu á þjónustuskerðingu. Árangurinn lætur ekki á sér standa.

Í fyrsta sinn í langan tíma var hægt að hefja aðlögun barna strax í ágúst og þann 7. september var aðlögun allra barna hafin. Til samanburðar hefur aðlögun undanfarin ár ekki getað hafist fyrr en mun seinna eða allt fram í nóvember, með tilheyrandi óvissu fyrir foreldra sem treystu á leikskólapláss eftir sumarfrí.

Engin þjónustuskerðing hefur verið á tímabilinu og mönnunarstaðan er með því allra besta sem sést hefur um árabil. Fagmenntuðu starfsfólki hefur fjölgað og nú eru deildarstjórar allra deilda með leyfisbréf kennara, í fyrsta sinn í mörg ár. Þetta eru ekki bara tölur á blaði, þetta er aukinn stöðugleiki fyrir börnin, betra starfsumhverfi fyrir starfsfólkið og meira öryggi fyrir foreldra.

Á Íslandi hefur áherslan í leikskólamálum verið að auka aðgengi og lækka gjöld. Nú er kastljósinu beint að hagsmunum barna og starfsaðstæðum. Með nýja fyrirkomulaginu endurspeglar dvalartími barna í leikskólum bæjarins nú frekar raunverulega vistunarþörf fjölskyldna. Það er jákvæð þróun, ekki síst þegar haft er í huga að samfélagið stendur undir um 90% af kostnaði við hvert leikskólapláss.
Við eigum að nýta þá fjármuni sem við höfum til ráðstöfunar af ábyrgð og tryggja að þeir skili sér í sem bestu starfi fyrir börnin. Reynsla síðustu mánuði gefur tilefni til bjartsýni.

Tæknin á að þjóna náminu

Notkun tölva og snjalltækja í skólastarfi hefur verið töluvert til umræðu undanfarið, ekki síst í kjölfar niðurstaðna PISA. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar upplifa tæplega 30% nemenda truflun vegna notkunar tækja í kennslustundum. Nemendur sem verða fyrir slíkri truflun ná að jafnaði lakari námsárangri. Þessar niðurstöður gefa fullt tilefni til að endurskoða hvernig við nýtum tæknina í skólastarfi. Báðir skólarnir á Nesinu eru nú símalausir en tækjakostur skólanna var efldur til muna við innleiðingu bannsins. Viðbrögðin voru mjög góð við símabanninu en ljóst er að nemendur eru fljótir að læra leiðir til að nýta sér tölvur skólanna til afþreyingar. Ég tel því mikilvægt að sett verði skýr og afdráttarlaus viðmið um notkun tölva í skólunum. Skjátími í skólastarfi þarf að hafa skýran tilgang og vera réttlætanlegur út frá ávinningi fyrir nemendur.

Selið blómstrar á nýjum stað

Það er ekki síður ánægjulegt að fylgjast með þróun félagsmiðstöðvarinnar Selsins, sem þjónar nemendum í 7.-10. bekk. Í janúar flutti Selið í nýja og glæsilega aðstöðu í Valhúsaskóla og er full ástæða til að fagna þeirri breytingu. Niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sýna að hlutfall nemenda í 8. – 10. bekk sem sækja félagsmiðstöðina tvisvar til fjórum sinnum í mánuði eða oftar hefur aukist úr 6% í 30%. Ef svör nemenda í 7. og 8. bekk eru skoðuð þá hefur hlutfallið hækkað úr 27% í 39%. Þetta eru afar ánægjulegar tölur sem sýna aukinn áhuga á félagsmiðstöðvarstarfinu en könnunin var lögð fyrir nemendur vorið 2026.

Íþróttastarf

Með sameiningu nefndanna gefst nú tækifæri til að horfa heildstætt á skóla-, íþrótta- og tómstundastarf bæjarins. Þessir málaflokkar eiga margt sameiginlegt og þjóna í grunninn sama markmiði, að skapa börnum og ungmennum gott umhverfi til að þroskast, læra og dafna. Jafnframt er mikilvægt að samstarf bæjarins og íþróttafélaganna byggist á skýrum markmiðum, gagnsæi og góðri nýtingu fjármuna. Öflugt íþróttastarf þarf trausta umgjörð og fyrirsjáanleika. Sameining nefndanna skapar tækifæri til að efla samstarfið enn frekar og móta skýra framtíðarsýn fyrir skóla-, íþrótta- og tómstundastarf á Seltjarnarnesi. Lengi býr að fyrstu gerð.

Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir, formaður skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar