Sterk rödd Seltirninga á Alþingi

Það er okkur Seltirningum sannarlega fagnaðarefni að tveir öflugir fulltrúar úr okkar samfélagi, þau Árni Helgason, lögmaður, og Ragnhildur Jónsdóttir, hagfræðingur og forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness, hafi tekið sæti á Alþingi sem varaþingmenn Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi á árinu. Árni kom inn í febrúar og Ragnhildur í maí og beittu þau sér fyrir málefnum sem varða réttlæti, gagnsæi, hagkvæmni og ábyrga stjórnsýslu.

Árni beindi meðal annars fyrirspurnum að dómsmálaráðherra um ríkisstyrki til stjórnmálasamtaka, og til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um það hversu háir rekstrarstyrkir til einkarekinna fjölmiðla hafa verið frá því þeir voru lögfestir árið 2021. Einnig spurði hann um auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins frá árinu 2007. Með þessum spurningum beindi Árni kastljósinu að mikilvægi jafnræðis og gagnsæis í opinberum stuðningi – og mikilvægi þess að fjölmiðlamarkaðurinn búi við skýran og sanngjarnan ramma.

Ragnhildur lagði áherslu á málefni sveitarfélaga og innviða. Hún beindi fyrirspurnum að innviðaráðherra um mögulegar breytingar á sveitarstjórnarlögum og reglugerðum sem snúa að viðmiðum um rekstrarstöðu sveitarfélaga, til að þau endurspegli betur raunverulega fjárhagsstöðu og stuðli að raunhæfri áætlanagerð. Þá spurði hún einnig um aðgerðaáætlun og fjárveitingu til þess neyðarverkefnis sem viðgerð og efling sjóvarna í ljósi hækkandi sjávarstöðu eru.

Sveitarfélagið varð fyrir tugmilljóna tjóni þegar göngustígar skemmdust í vonskuveðri veturinn sem leið en afar mikilvægt er að ríkið og sveitarfélög geti sameinast um að verja byggðir og innviði.

Enn fremur lagði Ragnhildur fram skýrslubeiðni um hvernig stjórnvöld hafi innleitt tillögur OECD frá árinu 2020 sem snúa að regluverki í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Markmið OECD með tillögunum er að einfalda flókið og kostnaðarsamt regluumhverfi, draga úr óþarfa reglubyrði, stuðla að aukinni samkeppni og nýsköpun og tryggja skilvirkari þjónustu við atvinnulífið. Með því að draga úr óþarfa hindrunum í leyfis- og samþykktarferlum má bæta húsnæðisframboð, auka arðsemi í ferðaþjónustu og stuðla að auknum hagvexti.

Seltirningar eiga því málefnalega og metnaðarfulla rödd á Alþingi. Það skiptir máli, ekki aðeins fyrir okkur áNesinu, heldur fyrir allt samfélagið.