Stórsigur Sjálfstæðisflokksins í Kraganum

Stórsigur Sjálfstæðisflokksins í Kraganum er glæsileg niðurstaða eftir mikla vinnu flokksmanna í sveitarfélögunum. Flokkurinn fékk rétt tæplega 34% fylgi og 5 þingmenn kjörna. Nokkuð betra en síðast þegar við fengum 30,7% í Kraganum. Á landsvísu fékk flokkurinn nú slétt 29,0%, sbr. við 26,7% árið 2013, og bætti við sig tveimur þingmönnum. Það stefnir allt í að Ísland verði áfram á réttri leið!

Við þökkum öllum sem lögðu hönd á plóginn í baráttunni og vitanlega öllum sem kusu okkur. http://ruv.is/frett/lokatolur-ur-sudvesturkjordaemi-0