Kæru Seltirningar!
Fyrir hönd Sjálfstæðisfélags Seltirninga vil ég hvetja alla þá sem hafa áhuga á því að gefa kost á sér að bjóða sig fram til prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Framboðsfrestur rennur út 10. janúar en prófkjörið sjálft fer fram 7. febrúar.
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna til starfa með okkur – því fleiri sem taka þátt, því betra fyrir fallega nesið okkar allra. Nú er kjörið tækifæri fyrir enn fleiri sem brenna fyrir Seltjarnarnesbæ að leggja sitt af mörkum og vinna með okkur að bæjarmálunum
Framboði er skilað rafrænt inn á mínum síðum á xd.is en allar upplýsingar má finna hér:
xd.is/profkjor-seltjarnarnesi-7-februar
Hlýjar kveðjur,
Sigríður Marta Harðardóttir,
formaður Sjálfstæðisfélags Seltirninga.
Ekki hika við að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna:
Ingimar, formaður kjörnefndar s. 896-7800
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri, s. 780-7777
Sigríður Marta, formaður Sjálfstæðisfélags Seltirninga, s. 779-4147



