Margt hefur áunnist í innri verkefnum bæjarins á liðnum misserum. Hér er í stuttu máli gerð grein fyrir helstu verkefnum er tengjast hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og skipulagsmálum.

Ráðinn var ungur og kraftmikill veitustjóri, Arnar Óli Einarsson, og hóf hann störf í apríl 2024. Hann hefur á skömmum tíma náð að setja sig vel inn í rekstur veitustofnana.

Eftirtalin hitaveituverkefni ber hæst:

* Endurnýjun á stofnlögn í Hæðarbraut. Verkefnið er unnið í áföngum og hefjastframkvæmdir við efsta hluta í byrjun júní 2025. Fjarlægja þarf gömlu lögnina úr stokki undir miðri gangstétt götunnar og leggja nýja lögn með sem allra minnstri truflun á rekstri hitaveitunnar. Malbikunarframkvæmdir fylgja þar sem það á við.

* Endurvirkjun borholu SN-04 sem stíflaðist þegar dæla féll ofan í holuna árið 2021 til að tryggja nægt heitt vatn til framtíðar. Leggja þarf nýja lögn inn í dæluhúsið, steypa nýja fóðringu utan um stálrör holunnar og gera nýja flæðimælingu áður en unnt er að byrja að nota holuna aftur. Að þessu loknu þarf að kaupa og setja upp viðeigandi dælu. Framkvæmdir hófust á árinu 2024 en stöðvuðust tímabundið vegna vetrarveðurs og annarra hitaveituverkefna.

* Búið er að kortleggja hvar helst ber á útfellingum í heitavatnslögnum bæjarins þannig að unnt sé að setja sandgildrur þar sem þær gagnast best. Þetta er gert til að minnka útfellingar í síum varmaskipta hjá íbúum. Áður hafa verið settar sandgildrar á átta staði í bænum og hafa þær reynst vel.

* Til að bæta rekstraröryggi hitaveitunnar stendur til að afleggja nokkra brunna sem eru óþarfir.

* Framtíðarskipulag vinnslueftirlits hitaveitunnar, þ.m.t. mælingar, gagnasöfnun og úrvinnsla gagna.

Fráveituverkefnin eru þessi:

* Setja þarf upp nýjan einstefnuloka í fráveitustöð sem í daglegu tali er nefnd Elliði og er sunnan við Nesveg nærri Tjarnarstíg.

* Endurnýja á stjórnstöð í dælustöð við Suðurströnd og setja upp nýja fráveitudælu. Nýlega var lokið við að búa til nýja tengingu inn í dælustöðina við Suðurströnd.

Vatnsveituverkefnin eru þessi:

* Nýlokið er endurnýjun á vatnslögn og rennslismælum í aðalkaldavatnsinntaki bæjarins, nærri gatnamótum Eiðsgranda og Suðurstrandar.

* Endurnýjun á vatnslögn frá gatnamótum á Norðurströnd og upp að Nesvegi, nærri ljósastýrðum gatnamótum.

Önnur verkefni:

* Bygging nýs leikskóla var boðin út í júní 2025 og byggingarleyfi er í samþykktarferli.

* Í sumar verður lokið við viðgerð á þaki húsnæðis tónlistarskólans og heilsugæslunnar. Hugmyndir eru um að endurnýja glugga í húsinu á næsta ári.

* Unnið er að því að koma á samræmdri verkefnastjórnsýslu innan bæjarins. Þetta nær ekki aðeins til verkefnastjórnunar heldur einnig til allra stjórnsýsluverkferla varðandi skipulagsmál og leyfisveitingar. Vinna er hafin við að skrá verkefni veitustofnana bæjarins og fjárfestingayfirlit fyrir 2025, sem og næstu ár. Vinna er einnig hafin við skráningu verkefna á skipulags- og umferðarsviði sem Gunnlaugur Jónasson, sviðsstjóri skipulags- og umferðarsviðs, stýrir.

* Verið er að skoða hagkvæmni þess að nota snjallmæla á öllu Seltjarnarnesi.

* Unnið var LED-væðingu götulýsingar á öllu Seltjarnarnesi s.l. sumar og þeirri vinnu mun ljúka í sumar.

* Undirbúningur er hafinn að endurskoðun umferðaráætlunar fyrir allt Seltjarnarnes.

* Lagfæringar eru fyrirhugaðar á Norðurströnd þar sem fyrirhugað er að koma fyrir einföldum umferðareyjum við gangbrautir til að koma í veg fyrir framúrakstur og auka umferðaröryggi áður en Norðurströndin verður síðan fræst og malbikuð að nýju.

* Götuhreinsun hófst snemma í vor og unnið verður áfram í sumar að hreinsun gatna og lagfæringum þar sem þörf er á.

* Fyrirhugað er að yfirfara allar gatnamerkingar og endurnýja þær eftir þörfum.

* Styrkja á sjóvarnir á öllu Seltjarnarnesi til framtíðar. Þetta er langtímaverkefni en undirbúningur er nú hafinn. M.a. þarf að velja hentugan geymslustað fyrir stórgrýti sem safnað verður eftir því sem tækifæri gefast og síðan flutt á viðeigandi staði í sjóvarnargarð.

* Starfsmenn bæjarins hafa unnið að viðgerðum á strandstígnum eftir skemmdir sem urðu á honum í stórviðrinu í mars. Því verki er að mestu lokið.

* Ný leikskóladeild verður opnuð á jarðhæð safnaðarheimilis Seltjarnarneskirkju næsta haust.

* Margvíslegar endurbætur á leiksvæðum bæjarins eru í undirbúningi og koma til framkvæmda á næstu misserum eftir því sem fjárhagur bæjarins leyfir.


Svana Helen Björnsdóttir, Ph.D. verkfræðingur, bæjarfulltrúi XD, formaður stjórnar veitustofnana Seltjarnarnesbæjar og formaður skipulags- og umferðarnefndar.