Heildstæðar umbætur og aukið aðhald í rekstri Seltjarnarnesbæjar

Undanfarna mánuði höfum við í meirihluta bæjarstjórnar Seltjarnarness unnið að heildstæðri endurskoðun á rekstri og stjórnsýslu bæjarins í þeim tilgangi að einfalda verklag, auka skilvirkni, skýra ábyrgð og hámarka þannig nýtingu tíma, mannauðs og fjármuna sveitafélagsins.

Þegar líða tók á árið varð ljóst að reksturinn yrði umtalsvert þyngri en áætlanir ársins gerðu ráð fyrir. Verðbólga, langvarandi hátt vaxtastig og miklar kostnaðarhækkanir hafa haft veruleg áhrif á rekstur sveitarfélaga. Á sama tíma getum við ekki horft eingöngu til utanaðkomandi þátta. Ljóst er að draga þarf úr útgjöldum og því mikilvægt að horfa gagnrýnum augum á eigin rekstur og kanna hvar tækifæri liggja til umbóta, en það skiptir máli hvernig við gerum það.

Við aðstæður sem þessar er oft gripið til þess að setja á flatan niðurskurð þvert á rekstur, en með slíkri aðferðafræði er hætt við að tækifæri til raunverulegra umbóta fari forgörðum og að þjónusta skerðist án þess að reksturinn hafi verið metinn til hlítar. Við teljum því vænlegra til árangurs að greina hverja rekstrareiningu út frá eigin forsendum, rýna kostnað, þjónustuþarfir og nýtingu og forgangsraða þannig út frá gögnum og faglegu mati.

Á sama tíma verðum við að horfa raunsætt á þau umfangsmiklu verkefni sem við viljum ráðast í. Heildarendurskoðun á stjórnsýslu og öllum rekstrareiningum bæjarins tekur tíma. Þess vegna vinnum við verkefnið í áföngum og leggjum áherslu á að vanda bæði undirbúning og ákvarðanatöku.

Fyrstu skrefin – einfaldari stjórnsýsla og aukið aðhald

Strax í upphafi kjörtímabilsins hófum við endurskipulagningu á stjórnsýslu bæjarins. Nefndum og ráðum var fækkað úr ellefu í sex, tengdir málaflokkar sameinaðir og stjórnsýslan einfölduð.

Markmiðið með þessum breytingum er að auka skilvirkni, flýta ákvarðanatöku og draga úr tíma sem starfsfólk ver í fundarhöld, undirbúning og eftirfylgni, þannig að tími og fjármunir nýtist betur í þágu íbúa.

Í framhaldinu höfum við gripið til eftirfarandi aðhaldsaðgerða:

  • Tímabundið ráðningarbann: Innri tilfærslur og endurskipulagning eru skoðaðar áður en ráðist er í nýráðningar, með nauðsynlegum undanþágum til að tryggja grunnþjónustu.
  • Yfirvinnubann: Aukið aðhald í yfirvinnu og betra skipulag verkefna, með nauðsynlegum undanþágum.
  • Lækkun kjara bæjarstjórnar: Við höfum lækka kjör bæjarstjórnar og taka upp nýtt greiðslufyrirkomulag þar sem hluti þóknunar miðast við raunverulega fundarsókn í stað fastrar mánaðarlegrar greiðslu. Með því er komið í veg fyrir tvígreiðslur þegar varamenn taka sæti aðalmanna. Áætlað er að breytingarnar lækki launagreiðslur til bæjarfulltrúa um allt að 18%.
  • Lækkun launa bæjarstjóra: Bæjarstjóri hefur að eigin frumkvæði ákveðið að lækka laun sín um 10%.

Næsti áfangi – heildarúttekt á rekstri sveitarfélagsins

Nú er unnið að næsta áfanga rekstrarendurskoðunar þar sem rekstur allra stjórnsýslueininga og stofnana bæjarins er tekinn til ítarlegrar skoðunar. Í þeirri vinnu er meðal annars farið yfir skipulag, verkferla, mönnun, þjónustustig og kostnað. Jafnframt er reksturinn borinn saman við önnur sveitarfélög, einkum þau sem eru sambærileg að íbúafjölda.

Sá samanburður sem þegar hefur farið fram bendir meðal annars til þess að opnunartímar sumra stofnana bæjarins séu rýmri en víða í sambærilegum sveitarfélögum. Það er verðmætt að geta boðið upp á góða þjónustu en við verðum jafnframt að horfast í augu við að lítið sveitarfélag nýtur ekki sömu stærðarhagkvæmni og þau sem stærri eru. Því þurfum við að sjálfsögðu að sníða okkur stakk eftir vexti og gæta þess að umfang þjónustunnar, nýting hennar og kostnaður fari saman.
Í þessu samhengi erum við því meðal annars að skoða opnunartíma, vaktaskipulag og aðsókn hjá stofnunum bæjarins. Þær athuganir eru hluti af mun stærri heildarendurskoðun á rekstrinum en fela ekki í sér að fyrirfram séu teknar ákvarðanir sem, til að mynda, kunna að leiða af sér skerðingu á þjónustu. Þvert á móti er markmiðið að meta hverja starfseiningu út frá rekstrargögnum, nýtingu og faglegu mati stjórnenda.

Gott dæmi um þessa nálgun er félagsmiðstöðin Selið. Við þá úttekt kom í ljós að starfsemin hafði þegar verið aðlöguð og því var ekki talin ástæða til frekari breytinga á opnunartíma að svo stöddu.

Vöndum til verka og horfum til framtíðar

Íbúar Seltjarnarness treysta bæjaryfirvöldum og kjörnum fulltrúum fyrir skattfé sínu, slíku fylgir mikil ábyrgð. Okkur ber skylda til að fara vel með þá fjármuni sem við höfum til ráðstöfunar og tryggja að þeir nýtist sem best í þágu bæjarbúa.

Við höfum þessa sýn að leiðarljósi í þeirri endurskoðun sem nú stendur yfir og við undirbúning ákvarðana um útgjöld samhliða gerð fjárhagsáætlunar. Verða þær tillögur kynntar bæjarbúum eftir því sem þær liggja fyrir á næstu vikum.

Þær ákvarðanir verða þó ekki endapunktur vinnunnar. Við höldum áfram að endurskoða skipulag og rekstur, bæta nýtingu fjármuna og fjárfestinga og styrkja fjárhagslegar undirstöður bæjarins. Markmiðið er ekki aðeins að draga úr kostnaði núna, heldur að tryggja hagkvæman, skilvirkan og fjárhagslega sjálfbæran rekstur til framtíðar.

Elísabet Einarsdóttir, formaður bæjarráðs